föstudagur, júní 25, 2004

Ég er orðin bloggari !!! :-)

Well well well
Fyrst maður ætlar að stinga af til útlanda verður maður víst að koma sér upp bloggi... ekki satt???

Ekki fer ég alla vega að skrifa fólki bréf á gamla mátann með blaði og penna... hehe...

Staðan er þannig núna að leiðbeinandinn er búinn að gefa grænt ljós á að skrifa ritgerðina úti svo nú er bara að ákveða um hvað hún að fjalla og fara svo að safna efni til að taka með.

Við eigum pantað far út 16. júlí og þetta er spurning að halda vel á spöðunum þangað til. Alla vega finnst mér að þetta hljóti að vera megadæmi að undirbúa sig, pakka niður því sem á ekki að taka með, svo pakka niður því sem á að taka með, panta far fyrir bílinn í skipi, púsla svo í hann öllu draslinu og svo auðvitað pappírsvinnan við að flytja úr landinu og svona... en kannski er þetta bara pís of keik!?!
Er alla vega vel sett með alla þessa ættingja sem þegar hafa gengið í gegnum þetta!!

Læt þetta duga í fyrsta sinn en ef einhver hefur áhuga þá kannski skrifa ég meira síðar :-)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home