föstudagur, apríl 29, 2005

Tónlist.is

Svona fyrir þá sem ekki vita það þá er frítt niðurhal á íslenskri tónlist á tonlist.is um helgina.
Ég sit því hér í nostalgíu fíling og er búin að sækja t.d. eitt með Herbert Guðmundssyni (ekki Can't walk away samt ;-) eitt með Ríó Tríó og svo slæddist með eitt Carly Simon lag sem mig hefur lengi langað að eiga en það þurfti ég reyndar að borga fyrir.
Ég þarf að leggja höfuðið í bleyti og reyna að muna eftir fleiri gömlum og nýjum smellum til að sækja á morgun.
Verst að ég er ekki búin að ná að nettengja vinnutölvuna heima, því hún er með geisladiskabrennara en ekki mín gamla. En ég redda því síðar!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home