föstudagur, apríl 22, 2005

Myndir

Ég var loksins að láta framkalla filmurnar úr vélinni minni og ég setti slatta af myndum á síðuna hennar Birtu. Þetta eru myndir alveg frá því í september í fyrra og eru því dreifðar um albúmin (af því ég er svo hrikalega skipulögð sko !! ), kannski ég hendi þeim öllum saman í albúm og setji hér? Svo ekki þurfi að leita að þeim út um allt á Birtu síðu, ha??? Er stemmari fyrir því?? Je sure... voða voða líklegt að ég fái einhver svör ;-)

Já, bæ ðe vei, GLEÐILEGT SUMAR !!

Við Birta snöpuðum okkur súkkulaðiköku í tilefni dagsins hjá Systu. Á morgun er svo stefnan tekin á Húsdýragarðinn.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Blessuð vertu ekkert að flokka þetta, það kæmi óorði á skipulagið mitt þar sem ég á ekki til eitt flokkað myndaalbúm í tölvunni minni ;o)og þykist ég nú vera eitthvað skipulögð. Flottar myndir annars :o)
kv
Systa

23 apríl, 2005 23:30  
Blogger BirtuMamma sagði...

Yessss... ekki nóg með að ég fengi svar... heldur líka svarið sem ég vildi ;-)
Sem sagt, ekkert albúm, it´s a deal!!

23 apríl, 2005 23:55  

Skrifa ummæli

<< Home