sunnudagur, janúar 09, 2005

AFMÆLISDAGUR


TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ MAMMA !!!

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ HRAFN !!!

Hingað komu góðir gestir í lítið fjölskylduboð þann 3. janúar. Það voru Stína með yngsta strákinn sinn, Hrafn og Hrefna með tvíburana sína, Rakel og Sædísi. Börnin skemmtu sér hið besta, miðlungarnir okkar þrír tóku að sér eitt af gestabörnunum hver og báru þau hér um allt hús og léku við/með þau. Hrafn er sum sé 2ja ára og tvíburarnir 3ja ára þannig að þetta var frekar skondið allt saman :-D


1 Comments:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Takk fyrir hamingjuóskir og afmælisgjafir. Þetta var mjög skemmtileg helgi hjá mér, eiginlega 2 afmælisdagar með sviðaveislu á laugardagskvöldi, síðustu laugardagsgestir fóru svona milli kl. 2 og 3 á sunnudagseftirmiðdegi og svo fórum við Gunný í bíó um kvöldið, sáum Bridget Jones.
Kveðjur mamma.

10 janúar, 2005 08:48  

Skrifa ummæli

<< Home